Ingvi Steinn Ólafsson hefur gengið til liðs við Defend Iceland sem yfirmaður vöruþróunar en þar mun hann leiða stefnumótun og þróun netöryggislausna fyrirtækisins ásamt því að styðja við uppbyggingu stafrænna varna viðskiptavina.
Hann er með B.Sc.-gráðu í hátækniverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og býr yfir áratugareynslu af tækni- og hugbúnaðarþróun innan fjármála-, trygginga- og nýsköpunargeirans.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tækni alveg frá ungum aldri og fékk oft að fikta og prufa mig áfram í gamalli tölvu sem eldri bróðir minn átti. Ásamt því að spila leiki og fleira þá hef ég oft verið í því að hjálpa fjölskyldunni með tæknimál í gegnum tíðina.“
Ingvi fór fyrst á bátanámskeið í tíunda bekk í grunnskóla árið 1999 en sá fljótlega að framtíð hans lægi í tækniheiminum. Hann útskrifaðist úr Tækniháskólanum í Hafnarfirði árið 2005 og fékk svo B.Sc.-gráðu frá HR árið 2014.
Nánar er fjallað um Ingva í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.