Pipar\TBWA auglýsingastofa hefur ráðið Margréti Stefánsdóttur, almannatengil og Silju Björk Björnsdóttur, sérfræðing í samfélagsmiðlum, í samskipta- og almannatengslateymi stofunnar, sem Lára Zulima Ómarsdóttir leiðir.

Margrét hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlum og almannatengslastörfum. Hún starfaði á árum áður á Stöð 2 og Bylgjunni. Hún hafði umsjón með sjónvarpsþáttum sem sýndir voru hjá Sjónvarpi Símans. Þættirnir fjalla um heilsu og hamingju kvenna á Íslandi, sem síðar voru tilnefndir til Edduverðlauna.

Hún var um árabil upplýsingafulltrúi Símans og markaðsstjóri Bláa lónsins og starfaði einnig um nokkurt skeið sem almannatengill hjá GSP World Wide Partners. Hún hafði umsjón með erlendum og innlendum fjölmiðlasamskiptum ráðstefnunnar Arctic Circle þegar ráðstefnan var fyrst haldin hér á landi í Hörpu.

Silja Björk hefur undanfarin ár starfað sjálfstætt sem rit- og textahöfundur og séð um samfélagsmiðla fyrir ýmis fyrirtæki og verkefni, m.a. hjá útgáfufélaginu Birtingi, staðið að skipulagningu Psychodelics as Medicine ráðstefnunnar og sem rekstrarstjóri kaffihússins BARR í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Þar áður starfaði Silja Björk lengst af sem þjálfari og höfundur fræðsluefnis hjá Te & Kaffi og var þar áður markaðsfulltrúi hjá Sagafilm.

Hún er með BA í kvikmyndafræði og ritlist frá Háskóla Íslands og hefur komið víða við á sínum ferli utan atvinnulífsins, m.a. sem talskona fyrir geðheilbrigði, femínisma og jákvæða líkamsmynd. Silja Björk hefur skrifað og gefið út tvær bækur um geðheilsu; Vatnið, gríman og geltið annars vegar og Lífsbiblían hins vegar. Hún hefur einnig haldið úti vinsæla femíníska hlaðvarpinu Kona er nefnd, ásamt því að lifa og hrærast á samfélagsmiðlum.