Margrét Stefánsdóttir.
Margrét Stefánsdóttir.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Margrét Stefánsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Bláa Lónsins. Margrét  hóf störf á markaðssviði fyrirtækisins í byrjun árs. Hún hefur víðtæka reynslu af markaðs- og kynningarmálum, bæði sem upplýsingafulltrúi Skipta og Símans og sem stjórnandi kynningarmála hjá Símanum.

Margrét hefur einnig starfað við markaðsráðgjöf og  almannatengsl hjá GSP Samskiptum ásamt því að starfa sem fréttakona á Stöð 2 og Bylgjunni.  Þá hefur Margrét komið að rekstri Íslandsfunda, fjölskyldufyrirtækis í ferðaþjónustu.

Hún lauk B.ed námi frá Kennaraháskóla Íslands og diplómanámi frá Háskóla Íslands í fjölmiðlun. Margrét er gift Úlfari Haraldssyni, framkvæmdastjóra Furu ehf. og eiga þau þrjár dætur.