Mariam Laperashvili hefur verið ráðin sem markaðsstjóri Wisefish, hugbúnaðarhúss í viðskiptalausnum fyrir aðfangakeðju sjávarútvegs- og eldisfyrirtækja á heimsvísu. Hún mun gegna hlutverki í að auka alþjóðlegan vöxt félagsins og styrkja vörumerki Wisefish.
Hún hefur víðtæka reynslu í fjölmiðlum, sölu, stafrænni þróun og markaðsmálum og kemur til Wisefish frá fjártæknifyrirtækinu Standby, þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri markaðsmála með sérstaka áherslu á Bandaríkjamarkað.
Áður starfaði hún sem forstöðumaður markaðs- og samskiptamála fjölmiðla Sýnar og hefur yfir árin unnið hjá íslenskum fyrirtækjum eins og Sagafilm, Reon og Tulipop og bandarískum félögum WorkAmerica og National Geographic.
„Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum og taka þátt í spennandi vegferð sem framundan er með frábæru teymi hjá Wisefish. Wisefish býður upp á lausn sem leysir flóknar áskoranir í sjávarútvegi og veitir fyrirtækjum þau verkfæri sem þau þurfa til að halda forskoti á markaðnum,“ segir Mariam.
Mariam er viðskiptafræðingur að mennt, lauk B.Sc. námi frá Háskóla Íslands og stundaði einnig nám við George Washington University þar sem hún sérhæfði sig í markaðsfræðum.
„Við erum afar ánægð að fá Mariam til liðs við Wisefish. Reynsla hennar í alþjóðlegri markaðssetningu og stefnumótun mun hafa mikil áhrif á áframhaldandi vöxt okkar á erlendum mörkuðum,” segir Siggeir, framkvæmdastjóri vörustýringar, sölu og markaðsmála.