Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrarstjóri (COO) og yfirframleiðandi hjá ACT4 framleiðslufyrirtækinu. ACT4 var stofnað í lok árs 2022 og sér um að þróa og fjármagna framleiðslu á íslensku sjónvarps- og kvikmyndaefni fyrir alþjóðamarkað.

„ACT4 er með mörg járn í eldinum og lauk nýlega tökum á sinni fyrstu sjónvarpsþáttaröð, Reykjavik Fusion fyrir Símann og þess vegna skiptir miklu máli fyrir okkur að ráða rétta fólkið til starfa. Milla er snilldar starfskraftur með fjölbreytta reynslu sem mun nýtast ACT4 á margan hátt og það eru forréttindi að fá svo öfluga manneskju í lið með okkur,“ segir Ólafur Darri Ólafsson leikari og einn eigenda ACT4.

Milla Ósk var áður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, mennta og menningarmálaráðherra.

Þar áður starfaði hún hjá Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og aðstoðarframleiðandi frétta, auk þess að sinna dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Milla Ósk er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur.