Mimoza Róbertsdóttir hefur verið ráðinn í nýja stöðu hjá Leikbreyti sem tæknistjóri. Hún hefur unnið hjá Leikbreytir frá árinu 2022 og sinnt ýmsum störfum, m.a. sem verkefnastjóri í innleiðingum og haldið utan um þróunarverkefni forritara félagsins sem starfa í tveimur löndum.
Síðastliðið ár hefur hún séð alfarið um forritunarteymi félagsins sem þróar Gift to wallet, greiðslumiðlunar- og vistkerfislausn fyrirtækisins sem mörg af stærstu verslunarfélögum landsins hafa innleitt til að gefa út gjafa-, viðskiptamanna og starfsmannakort á rafrænan og hefðbundin máta. Hún hefur stýrt þróun kerfisins og innleiðingu þess.
Áður starfaði Mimoza hjá Högum í vefumsjón. Hún er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands.
„Mimoz býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á starfsemi Leikbreytis og þeim lausnum sem við höfum þróað, Ég fagna því mjög að fá Mimozu í þetta nýja lykilhlutverk,“ segir Yngvi Tómasson framkvæmdastjóri Leikbreytis.
Mörg af stærstu verslunarfyrirtækjum landsins hafi valið greiðslumiðlunar- og vistkerfislausn Leikbreytis Gift to wallet til að halda utan um gjafakort sín en lausnin henti bæði fyrir verslanir og verslanamiðstöðvar sem nútíma greiðslumiðlunarlausn, sem líkja megi við vistkerfi.
Gift to wallet aðstoði fyrirtæki við útgáfu gjafa, viðskiptamanna-, vildar- og starfsmannakorta. Lausnin geri verslunum kleift að gefa út gjafakort og vildarkort á hefðbundin hátt í prenti sem og Apple og Google Wallet. Með kortunum sé síðan hægt að greiða fyrir vörur í verslun og þar sem kerfið sé samþáttað LS Retail, Ax, sjálfsafgreiðslukerfum og DK pos ásamt flestum helstu vefverslunar og posum.
„Gift to wallet hefur vakið áhuga erlendis enda á Gift to wallet erindi við flest allar verslunarmiðstöðvar og verslanakeðjur um allan heim og áætlar fyrirtækið að innleiða fyrstu viðskiptavini í Evrópu á næsta ári," bætir Yngvi við.