Upplýsingatæknifyrirtækið Crayon AS hefur ráðið Nönnu Pétursdóttur sem nýjan framkvæmdastjóra Crayon Iceland ehf. Hún mun stýra 20 starfsmanna teymi Crayon á Íslandi.
Nanna tekur við stöðunni af Sveini Hannessyni sem stýrt hefur fyrirtækinu frá árinu 2014 en hann var nýlega ráðinn forstjóri Jarðborana.
Nanna hefur starfað í upplýsingatæknigeiranum í um 20 ár, bæði í tækni- og stjórnunarstörfum. Undanfarin átta ár hefur hún starfað hjá Crayon, fyrst sem SAM (Software Asset Management) ráðgjafi og nú síðast hefur hún leitt uppbyggingu þjónustusviðs fyrirtækisins.
Áður starfaði Nanna hjá Íslandsbanka, Landspítala háskólasjúkrahúsi og Glitni banka.
„Það er mikil ánægja að fá Nönnu til að stýra íslenska teyminu,“ segir Michael Jacobs, framkvæmdastjóri Crayon á Norðurlöndum. „Með reynslu sinni hjá Crayon og einstakri þekkingu á íslenska markaðinum mun hún efla enn frekar þá vegferð okkar að hjálpa okkar samstarfsaðilum og viðskiptavinum þegar kemur að kostnaðarhagræðingu, stafrænni vegferð og vexti."
„Ég hlakka mikið til að taka að mér þetta nýja hlutverk,“ segir Nanna. „Það eru krefjandi áskoranir og mörg tækifæri á íslenska markaðinum á sviði upplýsingatækninnar. Ekki síst með það fyrir augum að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að hámarka arðsemi fjárfestinga í upplýsingatækni, auka skilvirkni, og efla nýsköpun og með því styrkja stoðir sínar. Sem er það sem ég brenn fyrir. Ég er spennt að nýta leiðandi stöðu og aðferðafræði Crayon þegar kemur að bestun fjárfestinga í upplýsingatækniinnviðum til að byggja upp sterk og langvarandi viðskiptatengsl við okkar viðskiptavini og samstarfsaðila.“