Á aðalfundi Cruise Iceland sem haldinn var 30. apríl sl. var ný stjórn skipuð en Sigurður Jökull Ólafsson, sem hafði verið formaður félagsins fyrir Faxaflóahafnir, óskaði eftir að stíga úr stjórn.

Í stjórn Cruise Iceland bættust Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna og Unnur Elva Arnardóttir forstöðumaður hjá Skeljungi en Unnur Elva var jafnframt kjörin formaður Cruise Iceland.

Varaformaður samtakanna er eftir sem áður Emma Kjartansdóttir fyrir hönd Iceland Travel en í stjórninni sitja einnig Íris Jóhannsdóttir fyrir hönd Gáru, Jóhanna Tryggvadóttir fyrir hönd Hafnarsamlags Norðurlands, Aðalheiður Borgþórsdóttir fyrir Hafnir Múlaþings og Blængur Blængsson fyrir Samskip.

Varamenn í stjórn eru Hilmar Lyngmo, hafnarstjóri hjá Höfnum Ísafjarðarbæjar, Örlygur Hnefill Örlygsson, fyrir Hafnir Norðurþings, og Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri Grundarfjarðarhafnar.

Á aðalfundi voru jafnframt samþykktar breytingar á skipulagi samtakanna sem fela meðal annars í sér áætlun um fjölgun félagsmanna. Fyrirkomulagi félagsgjalda hefur einnig verið breytt með það fyrir augum að gera minni aðilum auðveldara að taka þátt í starfi samtakanna.

„Aðalfundur var einhuga í því að fyrra fyrirkomulag Cruise Iceland væri gengið sér til húðar og að nauðsynlegt væri að tryggja aðgengi samtakanna að ákvarðanatöku stjórnvalda með því að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf. Sigurður Jökull hefur reynst happadrjúgur í þeirri vinnu undanfarna mánuði þar sem hver ágjöfin á fætur annarri kom frá fyrri ríkisstjórn,“ segir Unnur Elva, nýkjörinn stjórnarformaður Cruise Iceland.