Krónan hefur ráðið fjóra forstöðumenn til fyrirtækisins en það eru þau Ásta Bærings, Freyja Leópoldsdóttir, Bjarki Jónsson og Einar Þór Einarsson.

Ásta hefur verið ráðin forstöðumaður Mannauðs og menningar hjá Krónunni en hún kemur frá Þekkingu þar sem hún starfaði sem mannauðsstjóri frá árinu 2019. Hún hefur umfangsmikla reynslu á sviði umbreytinga ferla og vinnulags og það með stafrænar lausnir að leiðarljósi.

Hún er með tvöfalda mastersgráðu frá Háskólanum í Reykjavík, annars vegar í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og hins vegar upplýsingastjórnun.

Freyja er nýr forstöðumaður Markaðsmála og sjálfbærni hjá Krónunni og kemur frá S4S, þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri markaðsmála frá árinu 2019. Fyrir þann tíma var Freyja markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju frá árinu 2012.

Hún er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík ásamt B.A. gráðu í alþjóðlegri sölu- og markaðsfræðum frá Business Academy Southwest í Danmörku.

Bjarki hefur verið ráðinn forstöðumaður Aðfangastýringar hjá Krónunni. Hann á sér langa sögu hjá Krónunni en hann hóf sinn feril í kjötafgreiðslunni í Nóatúni árið 2006. Hann réð sig síðar til WOW air sem flugliði en hóf aftur störf hjá Krónunni árið 2019 og hefur sinnt margvíslegum verkefnum síðan þá á sviði aðfangastýringar, kerfisinnleiðinga og umbótaverkefna.

Bjarki er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Einar Þór hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra framleiðslufyrirtækisins Icelandic Food Company sem er dótturfyrirtæki Krónunnar. Frá árinu 2019 starfaði Einar Þór hjá Icelandair sem deildarstjóri á flugrekstrarsviði eftir að hafa verið forstöðumaður á fríverslunarsviði WOW Air frá 2018.

Einnig hefur Einar mikla reynslu á fjármálamarkaði, meðal annars sem innlánastjóri og í fjárstýringu hjá Kaupþingi, Arion banka og Kviku frá 2007 til 2018. Einar Þór er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.A. gráðu í fjármálum frá Eckerd College í Flórída.

„Við erum gífurlega ánægð að fá til liðs við okkur þessa öflugu og drífandi stjórnendur og það á mikilvægum tímum þar sem Krónan er í miklum vexti og spennandi verkefni fram undan. Þeirra reynsla og þekking mun efla okkur og styrkja enn frekar á okkar vegferð að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með framþróun og jákvæða upplifun að leiðarljósi,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.