Maven, þjónustu- og ráðgjafarfyrirtæki í upplýsingatækni, hefur fengið til liðs við sig tvo nýja starfsmenn, auk þess sem einn nýr meðeigandi hefur slegist í hópinn. Maven er þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni sem hóf rekstur sinn árið 2021.
Árni Böðvar Barkarson er nýgenginn til liðs við Maven en hann hefur víðtæka starfsreynslu þegar kemur að gögnum, meðal annars sem gagnaforritari hjá Controlant og sem sérfræðingur í stofngögnum (e. master data manager) hjá Marel.
Hann er með B.Sc. gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið 94 ECTS einingum í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Hann er nú í námi til M.Sc. í tölfræði við Háskóla Íslands.
Einar Þór Gunnlaugsson er nýr meðeigandi í Maven en hann starfaði sem gagnasérfræðingur með áherslu á tækninýjungar og nýtingu gagna í Svíþjóð áður en hann var ráðinn til starfa hjá Maven árið 2023.
Hann er gagnasérfræðingur með M.Sc. gráðu í upplýsingatæknikerfum frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð og B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá Háskóla Íslands.
Mateuz Cytrowski er gagnaverkfræðingur, hefur starfað frá Varsjá í Póllandi sem ráðgjafi hjá Maven og hefur nú verið fastráðinn til fyrirtækisins.
Hann er með M.Sc. gráðu í gríðargögnum (e. big data) og viðskiptagreiningum frá IE Business School í Madríd og hefur langa og víðtæka reynslu í gagnagreiningum og upplýsingatækni.
„Við finnum mikla eftirspurn eftir sérþekkingu okkar, þjónustu og lausnum sem auka rekstrarhagkvæmni fyrirtækja og þessar nýju ráðningar og fjölgun í hópi meðeigenda styrkir okkur svo um munar. Við erum hæstánægð með að fá Einar í meðeigendahópinn og njóta krafta hans áfram og bjóðum Árna og Mateuz hjartanlega velkomna til okkar,“ segir Helgi Hrafn Halldórsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Maven.