Norðurál hefur tilkynnt um ráðningu þriggja stjórnenda en það eru þau Guðmundur Óskar Ragnarsson, Margrét Rós Gunnarsdóttir og Þorsteinn Ingi Magnússon.
Guðmundur Óskar Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri steypuskála hjá Norðuráli, en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2008 við ýmis störf, síðast sem deildarstjóri þjónustu og búnaðar steypuskála, en lengst af sem formaður aðalverkstæðis. Guðmundur Óskar útskrifaðist sem hátæknifræðingur frá Syddansk Universitet og er með sveinsbréf í vélvirkjun.
Margrét Rós Gunnarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á samskiptasviði Norðuráls. Margrét Rós hefur reynslu úr fjölmiðlum, viðburðastjórnun og samskiptum. Áður en hún kom til Norðuráls vann hún við innri samskipti og viðburðastjórnun hjá Alvotech. Í fjölmiðlum vann hún lengst af hjá RÚV og SkjáEinum, aðallega við dagskrárgerð og fréttir. Margrét Rós stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Þorsteinn Ingi Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs hjá Norðuráli, en hann hefur starfað sem deildarstjóri áreiðanleikafræða og verkáætlana hjá fyrirtækinu. Hann er með meistaragráðu í vélaverkfræði frá University of Karlsruhe í Þýskalandi og MBA gráðu frá University of Massachusetts í Bandaríkjunum. Þorsteinn hefur um 20 ára reynslu úr framleiðslugeiranum, t.d. frá Mercedes Bens, Stanadyne Corporation, Rio Tinto og Ford Motor Company þar sem hann stýrði m.a. verkefnum tengdum gæðastjórnun, umbótum á framleiðsluferlum og vöruþróun.