Íslenska hátæknifyrirtækið Nox Medical, sem framleiðir lækningatæki til að greina svefnsjúkdóma, hefur ráðið fjóra stjórnendur til starfa. Nú telja starfsmenn hátt í 90 talsins og hefur fjölgað um 40% á síðustu tveimur árum.

„Nox Medical er í miklum stækkunarfasa og hefur nýlokið fjármögnun frá sérhæfðum bandarískum fjárfestingarsjóði,“ segir í fréttatilkynningu.

Diljá Valsdóttir hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Nox Medical. Hún hóf störf í markaðsteymi Nox Medical í mars 2017. Diljá er með BSc gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og diplómagráðu í stafrænni markaðssetningu frá Hyper Island.

Rósa Hugosdóttir hefur verið ráðin til að leiða nýtt vörurannsóknarteymi hjá Nox Medical. Rósa er heilbrigðisverkfræðingur að mennt og með doktorspróf frá Álaborgarháskóla. Hún hóf störf sem vörusérfræðingur hjá Nox Medical í febrúar 2021 en leiðir nú vörurannsóknarteymið sem ber m.a. ábyrgð á klínísku mati á lækningatækjum Nox Medical til að uppfylla regluverk ólíkra markaða.

Valur Guðlaugsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur á fjármálasviði. Hann er hagfræðingur að mennt og með M.Acc-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun. Valur mun bera ábyrgð á bókhaldi og uppgjöri Nox Medical á Íslandi og systurfyrirtæki þess í Bandaríkjunum. Hann mun vinna að því að samræma og bæta fjárhagsferla ásamt því að styðja áframhaldandi vöxt.

Valur kemur til Nox Medical frá Wise lausnum þar sem hann sinnti starfi ráðgjafa í Business Central lausnum og sérlegur sérfræðingur í fjármálum sveitarfélaga, en fyrir það starfaði hann við innleiðingu á nýju uppgjörskerfi hjá alþjóðlegri samstæðuuppgjörsdeild Actavis.

Snorri Helgason hefur verið ráðinn til að leiða teymi um markaðsaðgengismál fyrirtækisins (e. Market Access). Snorri er heilsuhagfræðingur að mennt frá Álaborgarháskóla og hefur unnið hjá fyrirtækinu síðan 2017. Hann hóf störf sem vörustjóri hjá Nox Medical og færði sig fljótlega yfir í markaðsmál lækningatækja.