Nasdaq á Íslandi (Kauphöllin og Nasdaq verðbréfamiðstöð) hefur undanfarið fengið nýtt fólk til starfa.

Andrea Louise Róbertsdóttir er sérfræðingur í þjónustu og rekstri hjá Nasdaq Iceland og Nasdaq verðbréfamiðstöð. Hún er með BSc. gráðu í hagfræði og fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík. Áður starfaði Andrea hjá Deloitte á Íslandi og þar áður hjá Icelandair.

Anton Ingi Arnarsson er nýr viðskiptastjóri á viðskiptasviði Nasdaq Iceland, en áður sinnti hann stöðu sérfræðings í viðskiptaþróun og þjónustu á sama sviði. Anton er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Áður en hann kom til starfa hjá Nasdaq vann hann hjá Íslandsbanka og hjá Sveitarfélaginu Árborg.

Guðrún Marinósdóttir er sérfræðingur á eftirlitssviði Nasdaq Iceland. Guðrún er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hún var áður hjá Controlant þar sem hún starfaði við gagnagreiningu.

Sindri Freyr Eiðsson er sérfræðingur hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð og mun einblína á samskipti og þjónustu við viðskiptavini. Hann er með B.Sc. gráðu í lífefnafræði, MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og verðbréfaréttindi. Sindri hefur undanfarin 11 ár starfað hjá Landsbankanum, nú síðast sem fyrirtækjaráðgjafi á fyrirtækjasviði.

Viktor Henttinen er sérfræðingur í viðskiptaþróun og þjónustu á viðskiptasviði Nasdaq Iceland. Hann hefur lokið BSc gráðu í almennri hagfræði frá Háskóla Íslands og MSc í hagfræði frá Háskólanum í Árósum (Aarhus BSS). Áður starfaði hann hjá golfbúðinni Golfskálanum.

Andrea Louise Róbertsdóttir, Anton Ingi Arnarsson, Guðrún Marinósdóttir, Sindri Freyr Eiðsson og Viktor Henttinen.
© Aðsend mynd (AÐSEND)