Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Eygló Harðardóttur, fyrrverandi ráðherra velferðarmála, formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands og Guðmund Magnússon varaformann.

Ný inn í stjórnina kemur einnig Ólafía B. Rafnsdóttir.

Heilbrigðisráðherra skipar fimm manna stjórn Sjúkratrygginga Íslands í samræmi við lög um sjúkratryggingar. Stjórnin skal staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu.

Í tilkynningu segir jafnframt að stjórnin skuli hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.

„Formaður stjórnarinnar skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi hennar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur er ekki í samræmi við fjárlög.“