Davíð Arnar Runólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures. Hann mun hafa umsjón með uppbyggingu og rekstri áfangastaða fyrirtækisins svo sem Fjaðrárgljúfurs, Óbyggðasetursins, Kersins og Raufarhólshellis sem Arctic Adventures rekur ásamt Kynnisferðum.
Davíð Arnar hefur starfað sem leiðsögumaður, landvörður og rekstrarstjóri í ferðaþjónustu frá árinu 2016.
Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri Raufarhólshellis og mun hann halda því starfi áfram samhliða nýju starfi sínu hjá Artic Adventures, að því er kemur fram í tilkynningu.
Davíð starfaði áður hjá CCP og Montana State University, en hann lauk BA námi í ljósmyndun þaðan. Davíð er einnig með meistaragráðu í ljósmyndafræðum frá háskólanum í Gautaborg.

© Aðsend mynd (AÐSEND)