Tómas Rúnar Sölvason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri laxeldis- og fiskvinnslufyrirtækisins Arctic Protein ehf.

Fyrirtækið, sem er með starfsstöðvar á Bíldudal og í Patreksfirði, býður upp á sjálfbærar lausnir fyrir vinnslu úr aukaafurðum í sjávarútvegi og fiskeldi með meltuframleiðslu.

„Það er mikið ánægjuefni að fá öflugan einstakling eins og Tómas til að þróa og leiða vöxt fyrirtækisins á næstu árum en áform eru um frekari stækkun með uppbyggingu á fleiri starfsstöðvum á landsvísu vegna aukinnar eftirspurnar á samkeppnishæfum lausnum fyrir aukaafurðir í laxeldi og vinnslu á hvítum fiski,“ segir Kjartan Ólafsson stjórnarmaður í Arctic Protein.

Tómas hefur nú þegar hafið störf en áður starfaði hann hjá Marel sem vélahönnuður í vöruþróun í kjötiðnaði. Á árunum 2014 - 2017 starfaði Tómas hjá vörubílaframleiðandanum Scania CV AB í Svíþjóð sem þróunarverkfræðingur í véladeild og þar á undan var hann hjá 3x Technology.

Hann er með meistaragráðu í vélahönnunarverkfræði frá Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi og BSc í véla- og orkutæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Það verður spennandi að taka þátt í vexti fyrirtækisins en í sjávarútvegi og fiskeldi er áætlað að 30-35 prósent af afla fari til spillis á hverju ári. Markmið Arctic Protein er að efla þjónustu fyrirtækisins með samkeppnishæfum lausnum við vinnslu og verðmætasköpun úr hliðarafurðum,“ segir Tómas.