Nýkjörin stjórn Bændasamtaka Íslands hefur gengið frá ráðningu Margrétar Ágústu Sigurðardóttur í starf framkvæmdastjóra samtakanna frá og með 1. ágúst næstkomandi. Tekur hún við keflinu af Örvari Þór Ólafssyni, sem tók við því hlutverki tímabundið í byrjun apríl sl. samhliða störfum sínum sem fjármálastjóri samtakanna.

Í tilkynningu segir að Hagvangur hafi annast ráðningarferlið en alls sóttu 28 manns um stöðuna.

Margrét hefur starfað síðustu 6 ár hjá PwC á skatta- og lögfræðisviði en þar áður um árabil hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og yfirskattanefnd. Þá er Margrét Ágústa umsjónarkennari alþjóðlegs skattaréttar við Háskólann á Bifröst.

„Það er afar ánægjulegt að fá Margréti Ágústu til þessa starfs. Ég er ekki í nokkrum vafa um að lögfræðileg sérþekking hennar, m.a. í skatta- og Evrópurétti, auk tollalöggjafar bæði hérlendis og erlendis, mun nýtast okkur með margvíslegum hætti,“ segir Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.

Margrét Ágústa er lögfræðingur að mennt og er með meistaragráðu úr lagadeild Háskóla Íslands og LL.M gráðu í evrópskum og alþjóðlegum skattarétti frá Háskólanum í Lundi.

„Frá blautu barnsbeini hef ég borið djúpa virðingu fyrir bændum og störfum þeirra. Mér þykir því sérstaklega vænt um það traust sem mér hefur verið sýnt með þessari ráðningu. Engum dylst mikilvægi þess að íslenskur landbúnaður geti áfram staðið vörð um afdráttarlaus gæði og hreinleika framleiðslu sinnar ásamt því að gegna lykilhlutverki í fæðuöryggi þjóðarinnar,” segir Margrét.