Benchmark Genetics Iceland hefur ráðið Benedikt Hálfdanarson sem nýjan framkvæmdastjóra frá 1. mars næstkomandi.

Í fréttatilkynningu þar sem greint er frá þessu segir að hann sé með mikla og víðtæka reynslu af alþjóðaviðskiptum, sem og reynslu í stjórnun fyrirtækis tengdu fiskeldi. „Benchmark hefur trú á því að Benedikt muni leiða fyrirtækið til enn frekari vaxtar.“

Dr. Jónas Jónasson sem hefur verið framkvæmdastjóri Benchmark Genetics Iceland síðan 2006 stígi nú til hliðar en hann muni halda áfram að sinna starfi sínu sem framleiðslustjóri á laxi og hrognum hjá Benchmark Genetics á Íslandi og á starfsstöðvum félagsins í Noregi og Chile. Því starfi hefur Jónas sinnt samhliða starfi framkvæmdastjóra síðan árið 2019.

„Jónas hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan árið 1996. Fyrstu árin starfaði hann sem sérfræðingur í kynbótum á laxi og framleiðslu á klaklaxi. Tíu árum síðar, 2006, tók hann við sem framkvæmdastjóri. Hann er þekktur innan laxeldisiðnaðarins fyrir frumkvöðlastarf og þróun aðferðar við framleiðslu á klaklaxi á landi þar sem hægt er að framleiða laxahrogn allt árið um kring. Þessi tækni var fyrst þróuð á Íslandi og síðar innleidd í Noregi á stöð Benchmark í Salten við Bodö og núna einnig í Chile. Jónas afhendir Benedikt gott og vel rekið fyrirtæki í þeirri vissu að Benedikt eigi eftir að stýra því vel og örugglega,“ segir í fréttatilkynningu.

„Ég er sannfærður um að Benni hefur þá kunnáttu og reynslu sem þarf til að halda áfram með Benchmark Genetics Iceland á þeirri farsælu vegferð sem fyrirtækið hefur verið á síðustu ár. Ég veit að það er gott að vinna með honum og hann er hvetjandi leiðtogi sem getur náð því besta út úr sínu starfsfólki. Reynsla hans frá Vaka sem hann hefur stýrt undanfarin ár er mikil og fyrirtækið orðið leiðandi með hátæknilausnir í fiskeldinu á heimsvísu. Ég og allir starfsmenn Benchmark tökum fagnandi á móti Benna og hlökkum til samstarfsins. Það hafa verið forréttindi að fá að leiða Benchmark Genetics Iceland, með frábærum starfsmönnum, síðustu 18 ár, en í dag er fyrirtækið ásamt systurfyrirtækjum í Noregi og Chile fremst í heiminum í framleiðslu á laxahrognum,“ segir Jónas Jónasson.

Benedikt hefur að auki reynslu sinnar í stjórnun bæði MBA gráðu frá Háskóla Íslands og Master í markaðsfræðum frá Norwegian School of Management – BI.

„Ég hef fylgst með fyrirtækinu frá því að það hét Stofnfiskur og séð það verða að leiðandi alþjóðlegu fyrirtæki í sölu á laxahrognum og hrognkelsaseiðum sem Benchmark Genetics Iceland. Það er með auðmýkt og stolti sem ég tek við ábyrgðinni af rekstri fyrirtækisins af Jónasi. Starfsmennirnir búa yfir einstaklega mikilli þekkingu og ég hlakka til að nýta reynslu þeirra og sameina það þekkingu minni á geiranum og vinna saman að þróun og vexti fyrirtækisins,“ er haft eftir Benedikt Hálfdanarsyni.