Bjarni Þór Logason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags en hann kemur til RVK frá Heimkaupum þar sem hann var innkaupastjóri og kom m.a. að opnun verslunarinnar Prís.

Áður starfaði hann sem rekstrarstjóri hjá Ölgerðinni, RJC og Líflandi og hefur yfir 20 ára reynslu af matvælamarkaði.

„Ég hef lengi verið aðdáandi bjóranna frá RVK Bruggfélagi og þekki því vel til félagsins, sem hefur verið þekkt fyrir að vera framsækið í vöruþróun. Þá er Tónabíó einstakur staður, þar sem gæði, stemning og metnaður mætast á einstakan hátt,“ segir Bjarni.

Ráðning Bjarna kemur samhliða mikilli sókn hjá félaginu sem hefur nýlega bætt fjórum nýjum kranabjórum við vöruúrval sitt. Dósirnar eru jafnframt hannaðar Karlsson Wilker í New York og hafa meðal annars hlotið gullverðlaun FÍT fyrir hönnun.

Bjarni hefur lokið BS-prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og rekstur auk þess að hafa lagt stund á nám í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Verslun með bjór stendur á tímamótum, þar sem tilkoma netverslana og bein sala frá framleiðendum hefur skapað nýja sölumöguleika auk þess sem kröfur um aukið frelsi og afnám einkasölu hins opinbera verða stöðugt háværari. Bjarni kemur til okkar með víðtæka þekkingu og reynslu af úr íslensku viðskiptalífi sem mun sannlega styrkja okkur í þessari þróun,“ segir Einar Örn Sigurdórsson, stjórnarformaður RVK Bruggfélags.