Trausti Árnason hefur störf sem framkvæmdastjóri Vélfags ehf. þann 1. nóvember næstkomandi og lætur þá af störfum sem forstöðumaður vörusviðs hjá Controlant. Þá tekur Bjarmi nú sæti í stjórn Vélfags.

Haft er eftir Trausta í tilkynningu að Vélfag sé spennandi fyrirtæki með mikla möguleika, sem byggi á sterkum grunni og tækni sem hafi sannað sig um allan heim.

„Bjarmi og Vélfagsteymið hafa mótað metnaðarfulla framtíðarsýn af miklu innsæi fyrir fiskvinnslu framtíðarinnar, þar sem UNO vélin mun leika stórt hlutverk. Ég er fullur tilhlökkunar og bjartsýni að takast á við allar þær áskoranir og þau tækifæri sem því fylgir með samhentum hópi starfsfólks, í nánu samstarfi með viðskiptavinum“ segir Trausti.

Bjarmi Sigurgarðarsson og Ólöf Ýr Lárusdóttir, stofnendur Vélfags, segjast ánægð á þessum tímamótum.

„Fyrirtækið býr yfir miklum mannauði og þekkingu og Trausti er að okkar mati leiðtogi sem hefur bæði reynslu og kosti sem leysa slíka krafta úr læðingi. Við lítum framtíð Vélfags björtum augum enda höfum við fulla trú á að Trausti muni leiða öflugt teymi Vélfags þannig að fyrirtækið skipi sér í fremstu röð í geiranum“

Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags segist fullviss um að ráðningin gefi Vélfagi byr í seglinn.

Trausti kemur líkt og áður segir frá Controlant þar sem hann hefur leitt uppbyggingu vörusviðs sl. 3 ár. Áður starfaði hann í tækni- og þjónustumálum fyrir sjávarútveginn og matvælaiðnaðinn allt frá árinu 1996, lengst af hjá Marel. Hann fór þá frá Marel til Skagans 3X þar sem hann leiddi tæknisvið og aðfangastýringu frá 2020 til 2021.