Ólafur Magnússon hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra tækni- og nýsköpunarsviðs Nova. Ólafur hefur starfað hjá Creditinfo Group frá árinu 2015, síðast sem framkvæmdastjóri sviðsins Global Technology & Delivery. Greint er frá ráðningu hans í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Ólafur tekur við starfinu 1. mars næstkomandi og mun Benedikt Ragnarsson, sinna starfinu þangað til en hann mun svo taka við nýju hlutverki innan Nova og verða tækniþróunarstjóri. Tilkynnt var um breytingar á framkvæmdastjórn Nova í síðasta mánuði.
Áður en Ólafur hóf störf hjá Creditinfo starfaði hann í fjarskiptageiranum, m.a. hjá Símanum og hjá alþjóðlega fjarskiptafyrirtækinu 3 í Svíþjóð. Ólafur er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
„Við fögnum því að fá góðan liðstyrk og halda áfram að skora á okkur sjálf og markaðinn. Fjarskiptafyrirtæki eru í eðli sínu mikilvæg innviðafyrirtæki og er Nova á meðal stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækja landsins. Vel heppnuð markaðssetning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hefur skilað Nova sterkri markaðshlutdeild og ánægðum og tryggum viðskiptavinum. Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfsfólks hefur skilað félaginu miklum ávinningi og tekjuvexti undanfarin ár og ég trúi því að Óli muni styrkja Nova liðið en frekar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova.
„Fjarskiptageirinn er ákaflega spennandi, í stöðugri þróun þar sem ný tækni veitir viðskiptavinum sífellt betri þjónustu og notendaupplifun á hagkvæman hátt. Ég hlakka til að kynnast þeim öfluga hópi liðsfélaga hjá Nova sem hafa allt frá kröftugr innkomu á íslenskan farsímamarkað verið í fararbroddi í nýsköpun. Nova er í kjörstöðu til að leiða áfram nýjungar á markaði og ég er spenntur að taka þátt í þeirri vegferð,“ Ólafur Magnússon.