Landeldisfyrirtækið First Water hefur ráðið Ómar Grétarsson til að stýra sölu- og markaðsmálum fyrirtækisins. Ómar er með BS gráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík.

Landeldisfyrirtækið First Water hefur ráðið Ómar Grétarsson til að stýra sölu- og markaðsmálum fyrirtækisins. Ómar er með BS gráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík.

Hann hefur víðtæka reynslu þegar kemur að laxeldi en ferill Ómars í geiranum nær aftur til ársins 2013 þegar hann hóf störf sem sölustjóri hjá Fjarðalaxi. Eftir sameiningu fyrirtækjanna Fjarðalax og Arnarlax, undir merkjum þess síðarnefnda árið 2016, starfaði Ómar sem sölustjóri þar til á þessu ári þegar hann var ráðinn til First Water.

„Ég er virkilega ánægður með að fá Ómar til liðs við okkur enda reynslubolti á laxeldissviðinu en þeir eru svo sannarlega ekki á hverju strái hérlendis. Ómar kemur inn á hárréttum tíma til að styðja við uppbyggingu fyrirtækisins en við hjá First Water ætlum okkur stóra hluti. Ómar skilur fyrir hvað við stöndum og ég er viss um að hann á eftir að setja jákvætt mark á fyrirtækið,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water.

Eldisstöð First Water er staðsett í Þorlákshöfn en uppbyggingin á svæðinu er í sex áföngum og eru áætluð verklok framkvæmda árið 2029. Í sumar voru um 200 einstaklingar að störfum hjá fyrirtækinu og í árslok er stefnt að því að um 1500 tonn af laxi hafi verið framleidd.

„Ég geng spenntur inn í nýtt starf og vonast til að brennandi áhugi minn og rík reynsla í sölu- og markaðsmálum, tengdum íslenskum laxi, komi vel að notum. Eins lít ég á þetta sem kjörið tækifæri fyrir mig til að læra meira og þróast með þeirri metnaðarfullu starfsemi sem á sér stað hjá First Water,“ segir Ómar.