BHM hefur ráðið Pálu Hallgrímsdóttur í stöðu kynningarstjóra en Pála hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlageiranum, almannatengslum og upplýsingamiðlun, bæði innan opinberrar stjórnsýslu og í félagasamtökum.
Hún kemur til BHM frá Veðurstofu Íslands, þar sem hún starfaði sem samskiptafulltrúi og hafði umsjón með vefritstjórn, fréttaskrifum, samfélagsmiðlum og samskiptum við fjölmiðla og hagaðila.
Áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Norræna félaginu og Snorrasjóði, þar sem hún sá um skipulag, fjármál og kynningarmál á alþjóðavettvangi. Hún hefur einnig fjölbreytta reynslu úr fjölmiðlum, þar á meðal sem dagskrárgerðarkona og á fréttastofu RÚV.
Pála er með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og Stokkhólmsháskóla. Hún er með B.A.-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og lauk skiptinámi í utanríkisstefnu Bandaríkjanna frá American University í Washington DC.
Þar að auki hefur hún lokið námskeiði í Strategic Communications frá London School of Economics.