Stjórn Starfsþróunarseturs BHM hefur ráðið Pál Ásgeir Guðmundsson sem framkvæmdastjóra setursins. Páll Ásgeir hefur að baki víðtæka reynslu úr stjórnsýslu, atvinnulífi og samtökum á vinnumarkaði.

Hann starfar nú sem þróunar- og samskiptastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og hefur áður gegnt stöðu forstöðumanns málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins.

Þar á undan starfaði hann í fimm ár sem aðstoðarmaður ráðherra í forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti en þar sinnti hann til að mynda samhæfingu efnahagsaðgerða og eftirfylgni stefnumála ríkisstjórnarinnar.

Í atvinnulífinu hefur hann meðal annars starfað sem sviðsstjóri markaðs- og viðhorfsrannsókna hjá Gallup og leitt þróun lausna og ráðgjöf fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins.

Páll Ásgeir er með BA-próf í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur jafnframt setið í fjölmörgum stjórnum og nefndum, þar á meðal hjá VIRK, Icelandic Trademark Holding, Almannarómi og sem varamaður í stjórn Gildis lífeyrissjóðs.

„Starfsþróunarsetrið gegnir lykilhlutverki í að efla símenntun og starfsþróun háskólamenntaðra. Með hröðum breytingum á vinnumarkaði og aukinni tækniþróun skapast ný tækifæri til að nýta menntun á fjölbreyttari hátt. Ég hlakka til að taka þátt í því verkefni með öflugu samstarfsfólki og stjórn,“ segir Páll Ásgeir Guðmundsson.