Unnur Andrea Sævarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip. Hún mun leiða teymi sem býður upp á skilvirkar og hagkvæmar flutningalausnir til viðskiptavina félagsins.
Hún hóf störf hjá Eimskip árið 2016 sem sumarstarfsmaður í innflutningsþjónustu og lauk B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá HÍ árið 2018 þegar hún var ráðin í fullt starf í þjónustuteymi innflutnings hjá félaginu.
Unnur starfaði um tíma á skrifstofu Eimskips í Þýskalandi og segist hafa fengið góða innsýn inn í alþjóðlega starfsemi félagsins. Hún tók síðar við sem sölustjóri og leiddi sölustarf skrifstofunnar.
„Innflutningur til Íslands er einn af lykilþáttum í okkar samfélagi. Hlutverk okkar er að veita framúrskarandi þjónustu og finna bestu lausnirnar hverju sinni fyrir viðskiptavini. Við erum með öflugt net samstarfsaðila erlendis og erum í samstarfi við mörg af stærstu skipafélögum heims,“ segir Unnur Andrea.