Janus heilsuefling hefur fengið til liðs við sig Ragnar Örn Kormáksson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Ragnar tekur við keflinu af Báru Ólafsdóttur, sem gegnt hefur starfinu síðastliðin ár.

Bára mun áfram gegna lykilhlutverki í starfseminni sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO), þar sem hún mun einbeita sér að daglegum rekstri og uppbyggingu þjónustunnar.

Ragnar hefur meðal annars starfað sem fjármálastjóri hjá Klak - Icelandic Startups, í viðskiptaþróun hjá Bókun sem var keypt af TripAdvisor og nú síðast sem markaðsstjóri EVE Frontier hjá CCP.

„Janus heilsuefling hefur þegar haft gríðarlega jákvæð áhrif á líf þúsunda einstaklinga. Heilsueflingin hjá Janusi heilsueflingu er vísindalega studd nálgun sem sýnir mælanlegan árangur á aðeins sex mánuðum. Þeir sem halda áfram í tvö ár eða lengur geta stórbætt lífsgæði sín enn frekar, bæði líkamlega, andlega og félagslega,“ segir Ragnar Örn.

Janus heilsuefling byggir á áratuga rannsóknum Janusar Guðlaugssonar, stofnanda fyrirtækisins og frumkvöðuls í heilsutengdum forvörnum. Aðferðir hans og þjónusta Janusar hafa markað ákveðin straumhvörf í lýðheilsu eldri samfélagsþegna.

„Það gleður mig mjög að fá Ragnar til liðs við okkur. Hann býr yfir dýrmætri reynslu úr nýsköpun, viðskiptum og stefnumótun sem mun hjálpa Janus heilsueflingu að styrkja sig enn frekar og getu okkar til að aðstoða fólk við að bæta líf sitt og heilsu,“ segir Janus Guðlaugsson.