Rakel Sveinsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi og varamaður í stjórn Creditinfo Group, hefur látið af störfum fyrir félagið.
Á heimasíðu Creditinfo kemur fram að Rakel starfaði fyrst sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlavaktarinnar frá 2005 en leiddi síðar sameiningu Lánstrausts og Fjölmiðlavaktarinnar áramótin 2007/2008 og varð framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Því starfi sagði hún lausu fyrir um ári síðan og hætti sem framkvæmdastjóri þann 1. febrúar sl.
Fjárfestingum slegið á frest
Í fréttinni kemur fram að við þessi starfslok tóku við verkefni fyrir Creditinfo Group þar sem skoðaðar voru fjárfestingar á sviði rannsókna og greininga. Eftir nokkrar umleitanir á þeirri starfsgrein hefur nú verið ákveðið að fresta slíkum hugmyndum ótímabundið.
„Þetta hefur verið viðburðarríkur og góður tími og forréttindi að vinna við fyrirtæki sem nær að vaxa um meir en 100% á skömmum tíma. Varkárni tryggði félaginu gott gengi í gegnum bankahrunið og í ljósi þeirrar stöðnunar sem enn einkennir íslenskt atvinnulíf erum við ekki að sjá að stórar fjárfestingar séu vænlegar í augnablikinu. Ég kveð því félagið með góðum hug og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir hverjar sem þær verða“ ef haft eftir Rakel á heimasíðu Creditinfo.
Rakel starfaði áður lengst af hjá Morgunblaðinu og síðar Stöð 2, varð síðan framkvæmdastjóri sameinaðs Leikfélags Íslands og rak síðar talsetningafyrirtækið Hljóðsetningu sem nú er í eigu Senu.
Rakel hefur undanfarið ár tekið þátt í umbótastarfi í íslensku viðskiptalífi, hvort sem er aukinni hlutdeild kvenna í atvinnulífinu eða góðum stjórnarháttum. Hún segir að enginn þurfi að efast um að hún haldi því starfi áfram.
Á heimasíðunni þakkar Creditinfo Group Rakel góð störf á liðnum árum.