Hugbúnaðarfyrirtækið Reon hefur ráðið Orra Eyþórsson í stöðu hönnunarstjóra (e. Creative Director). Orri mun leiða hönnunarstefnu fyrirtækisins, stýra hönnunarverkefnum og móta notendaupplifun í stafrænum lausnum Reon.

Orri kemur til Reon frá Spotify, þar sem hann starfaði sem hönnuður (e. Senior Product Designer). Hann býr yfir áratugareynslu af stafrænum hönnunarmálum og hefur áður unnið fyrir og með fyrirtækjum á borð við Verna, IKEA, Marel og Nespresso.

„Við erum himinlifandi að fá Orra í teymið. Hönnun er lykilþáttur í þróun og árangri stafrænna lausna og grundvöllur þess að skapa traust og tengsl við notendur. Orri býr yfir mikilli reynslu og einstökum hæfileikum til að sameina nýsköpun við notendavæna nálgun, og við hlökkum til að fá hann með í næstu skref fyrirtækisins,“ segir Rósa Dögg Ægisdóttir, framkvæmdastjóri Reon.

Í tilkynningu segir að Reon hafi á undanförnum misserum stækkað með fjölbreyttum ráðningum á sviðum markaðs, sölu og vöruþróunar.

„Ég tók mín fyrstu skref í hönnun hjá Reon og það er virkilega spennandi að snúa aftur eftir rúm sjö ár í burtu og fá tækifæri til að leiða hönnunarsviðið á þessum spennandi tímum,” segir Orri Eyþórsson, hönnunarstjóri Reon.