Hreint hefur ráðið Rúnar Ágúst Svavarsson sem aðstoðarframkvæmdastjóra en um er að ræða nýja stöðu innan félagsins.

Í tilkynningu segir að Rúnar hafi verið lykilmaður í rekstri Hreint undanfarin 12 ár og stýrt fjölmörgum mikilvægum verkefnum, ásamt því að hafa starfað þvert á svið hjá Hreint, síðast sem sviðsstjóri þróunar- og markaðssviðs.

Rúnar lauk á þessu ári MBA-námi við Háskólann í Reykjavík með áherslu á stefnumótun, rekstur og leiðtogastjórnun, sem styður enn frekar við vöxt og framþróun Hreint. Hann er einnig með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Ég er afar spenntur fyrir nýju hlutverki og þeirri áskorun að taka þátt í næstu skrefum Hreint á spennandi vegferð. Við erum að vaxa hratt og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að styðja við áframhaldandi þróun fyrirtækisins,“ segir Rúnar Ágúst Svavarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Hreint.

Fyrirtækið flutti nýlega höfuðstöðvar sínar í nýtt og stærra húsnæði í Kópavogi og stendur slíkt hið sama til á Akureyri á komandi misserum.

„Við erum mjög ánægð með að hafa Rúnar áfram með okkur í nýrri stöðu. Hann hefur lengi verið hluti af okkar leiðtogateymi og þekkir fyrirtækið út og inn,“ segir Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri Hreint.