© Aðsend mynd (AÐSEND)
Runólfur Þór er 41 árs verkfræðingur með sérhæfingu í stjórnun framkvæmda og stundaði hann framhaldsnám í Kaupmannahöfn og við Háskólann í Reykjavík eftir útskrift sem iðntæknifræðingur frá Tækniskóla Íslands 2002.
Runólfur hefur starfað hjá VSÓ Ráðgjöf frá árinu 2008 bæði hér á landi og í Noregi þar sem hann tók virkan þátt í uppbyggingu VSO Consulting AS en undanfarin misseri hefur hann starfað sem sviðsstjóri á burðarþolssviði VSÓ Ráðgjafar á Íslandi.
Grímur Jónasson mun áfram starfa hjá VSÓ og sinna þar ýmsum verkefnum og miðla af 35 ára reynslu sinni af verkfræðiráðgjöf.