Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri KAPP. Hann kemur til félagsins eftir að hafa starfað hjá Marel síðastliðin níu ár, þar af síðustu tvö árin sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðar og framkvæmdastjóri Marels á Íslandi.

Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri KAPP. Hann kemur til félagsins eftir að hafa starfað hjá Marel síðastliðin níu ár, þar af síðustu tvö árin sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðar og framkvæmdastjóri Marels á Íslandi.

Ólafur mun styðja Frey Friðriksson, forstjóra og eiganda KAPP, við daglegan rekstur ásamt því að bera ábyrgð á uppbyggingu og rekstri erlendrar starfsemi félagsins.

KAPP er íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. KAPP hefur framleitt og selt OptimICE krapavélar og RAF sprautusöltunarvélar um allan heim. OptimICE er fljótandi krapaís sem framleiddur er úr sjó um borð í skipum og leysir af hólmi hefðbundinn flöguís.

„KAPP metur svo að mikil tækifæri eru fyrir vörur félagsins að bjóða félögum í sjávarútvegi í Bandaríkjunum, Kanada og í Alaska og er ráðning Ólafs liður í þeirri vegferð,“ segir í tilkynningu um ráðninguna.

Á síðasta ári fjárfesti sjóðurinn IS HAF í 40% eignarhlut félagsins, sem er liður í vaxtaráformum KAPP.

„KAPP er afar flott fyrirtæki, sem byggir á sterkum grunni og hefur skýr vaxtarmarkmið. Orðspor félagsins er sterkt og byggir á góðum gildum ásamt öflugu starfsfólki og eignarhaldi. Ég hlakka mikið til að kynnast fyrirtækinu betur og því öfluga fólki sem þar starfar ásamt því að styðja við næsta vaxtarskeið fyrirtækisins. Tækifærin eru fjölmörg þar sem KAPP getur orðið leiðandi í að tryggja jákvæð áhrif á virðiskeðju matvæla í heiminum í framtíðinni,” er haft eftir Ólafi Karli.

„Við eigendur og stjórn KAPP fögnum því að fá svona öflugan liðstyrk við félagið. Reynsla Ólafs mun nýtast vel til frekari vaxtar KAPP,” segir Freyr Friðriksson, forstjóri fyrirtækisins.