Ólafur Evert Úlfsson hefur verið ráðinn til lögmannsstofunnar Deloitte Legal, sem tók til starfa fyrir rúmu ári síðan.
Ólafur Evert kemur til Deloitte Legal frá Skattinum þar sem hann starfaði frá árinu 2016, fyrst við almennt skatteftirlit en svo í milliverðlagningarteymi embættisins frá því það teymi var stofnað.
Hann hefur hlotið alþjóðlegar vottanir á sviði alþjóðlegs skattaréttar og milliverðlagningar frá Chartered Institute of Taxation. Ólafur Evert lauk BA-prófi frá lagadeild Háskólans í Reykjavík árið 2014 og meistaranámi frá sama skóla árið 2016. Þá hlaut hann málflutningsréttindi á þessu ári.
Haraldur I. Birgisson, meðeigandi og framkvæmdastjóri Deloitte Legal:
„Skattayfirvöld hér á landi sem og erlendis hafa á undanförnum árum lagt sífellt meiri áherslu á málefni tengd milliverðlagningu. Veigamikill hluti alþjóðlegra viðskipta heyrir undir milliverðlagsreglur sem sést vel á því að mörg af stærri ágreiningsmálum á sviði skatta varða þetta flókna regluverk. Það er því mikill fengur í því fyrir okkur að fá Ólaf Evert til liðs við Deloitte Legal. Reynsla hans og sérfræðiþekking munu koma til með að nýtast viðskiptavinum okkar vel í þeirra alþjóðlegu starfsemi og uppbyggingu.“