Sigríður Theódóra Pétursdóttir hefur verið ráðin til starfa sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Hún kemur til Aton frá auglýsingastofunni Brandenburg þar sem hún starfaði í um áratug á, m.a. sem viðskiptastjóri, framkvæmdastjóri og meðeigandi.

„Koma Sigríðar Theódóru til Aton er liður í enn frekari sókn stofunnar í vörumerkjauppbyggingu og auglýsingagerð,“ segir í fréttatilkynningu Aton.

Sérsvið Sigríðar Theódóru verður stefnumótun og vörumerkjauppbygging en hún hefur áralanga reynslu af markaðsstörfum og vörumerkjauppbyggingu. Hún hefur unnið fyrir þó nokkur fyrirtæki og stofnanir, þ.á.m. Nova, Play og Íslandsstofu og hefur einnig starfað við ráðgjöf og framleiðslu.

Hún hefur meistarapróf í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og lauk námi í markaðslegri stjórnun og samskiptum við Toulouse Business School.

„Aton hefur ótvíræða sérstöðu þegar kemur að skipulögðum samskiptum, stefnumótun og markaðsmálum. Ég sé ótal tækifæri til að sækja fram á auglýsingamarkaði og nýta enn betur samlegðaráhrif sköpunar, hönnunar og samskipta. Vörumerki virka best þegar allar birtingarmyndir þeirra, hönnun, auglýsingar og samskipti við fjölmiðla og viðskiptavini, segja sömu söguna. Mér er sannur heiður að taka þátt í þeirri uppbyggingu og þeirri vegferð sem Aton er á, að vera framsækin og öflug stofa í fremstu röð,“ segir Sigríður Theódóra.

„Það er vægast sagt mikill fengur í því að fá Sigríði Theódóru til liðs við okkur. Hún verður hluti af frábærum hópi og kemur með þekkingu sem mun styrkja Aton enn frekar. Hún kemur ekki aðeins með dýrmæta reynslu að borðinu heldur deilir hún með okkur sýn á hvernig markaðs- og samskiptamál geta stuðlað að miklum og langvarandi árangri viðskiptavina okkar. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í hópinn og hlökkum mikið til samstarfsins”, segir Sif Jóhannsdóttir, rekstrarstjóri Aton.