Sigurður Erlingsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses og mun hann hefja störf á næstu dögum. Sparisjóðurinn greinir frá ráðningu Sigurðar í fréttatilkynningu.
Sigurður er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Andrews University í Bandaríkjunum (1994), með próf í verðbréfamiðlun (1998), með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál (2003) og MBA frá Háskólanum í Reykjavík (2010).
Síðastliðin þrjú ár hefur Sigurður starfað sem fjármálastjóri HEKLU hf bílaumboðs og setið í framkvæmdastjórn félagsins. Á árunum 2010-2015 var Sigurður forstjóri Íbúðalánasjóðs, og segir í tilkynningunni að þar hafi hann tekist „giftusamlega á við flókin verkefni í kjölfar bankahrunsins og kom leigufélaginu Klett á fót sem var með leigueignir um allt land.“
Sigurður starfaði hjá Landsbanka Íslands hf. frá 2000-2008, fyrst sem sérfræðingur í greiningardeild en lengst af sem forstöðumaður á alþjóðasviði bankans. Frá 2008-2010 starfaði Sigurður sem verkefnastjóri í fjárhagslegri endurskipulagningu stærri fyrirtækja hjá NBI hf. Sigurður hefur einnig starfað sem millistjórnandi á fjármálasviði fyrirtækja, við ráðgjöf, og setið í stjórnum fyrirtækja og félagasamtaka.
Sigurður hefur verið stundakennari í fjármálanámskeiðum bæði við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og við Opna Háskólann í HR frá 2001, þar sem hann hefur m.a. kennt og verið prófdómari í námi í verðbréfaviðskiptum.
„Sigurður hefur yfirgripsmikla reynslu á fjármálamarkaði, fjármálastarfsemi og fjármálum fyrirtækja. Hann hefur mikla reynslu af útlánastarfsemi, bæði til einstaklinga og fyrirtækja. Þá hefur hann leitt og komið að fjárhagslegri endurskipulagningu hjá fjölda fyrirtækja. Hjá Landsbankanum var hann í erlendri fjármögnun bankans, alþjóðlegum bankasamskiptum, greiðslumiðlun og samskiptum við lánshæfimatsfyrirtæki,“ segir í fréttatilkynningu.
Sigurður er giftur Nönnu Guðnýju Sigurðardóttur sjúkraþjálfara sem starfar sem gæðastjóri Hrafnistuheimilanna og saman eiga þau tvo drengi.