Skúli Gunnar Árnason hefur verið ráðinn til starfa hjá Eimi og mun þar leiða Evrópuverkefni um orkuskipti í dreifðum byggðum.

Skúli er vélaverkfræðingur og útskrifaðist með BSc gráðu frá Háskóla Íslands árið 2009 og með MSc gráðu frá Tækniskóla Danmerkur - DTU árið 2013. Hann vann við rannsóknir og þróun hjá Siemens Turbomachinery í Danmörku frá 2014.

Árið 2017 keypti Howden Turbo fyrirtækið og tók Skúli þar við hlutverki deildarstjóra í þessari sömu deild. Þar stýrði hann alþjóðlegum verkefnum við þróun og framleiðslu á vörum sem sneru að skólphreinsun, reykhreinsun og að því að draga úr mengun og eldsneytiseyðslu skemmtiferðaskipa og gámaskipa.

„Orkuskiptin eru mikilvægt og gríðarstórt verkefni sem snertir okkur öll og gegna sveitarfélögin þar lykilhlutverki. RECET verkefnið er nauðsynlegur stuðningur við alla hagsmunaaðila, svo hægt sé að ná markmiðum um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040,“ segir Skúli Gunnar.

Verkefnið Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET) hlaut nýverið styrk sem nemur um 1,5 milljónum evra úr LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál. RECET er samstarfsverkefni fimm landa og tuga sveitarfélaga um alla Evrópu, með Ísland í fararbroddi.

„Ég hef fylgst með því mikilvæga og spennandi starfi sem Eimur hefur verið að vinna að undanfarin misseri og hlakka mikið til að vera hluti af teyminu,“ segir Skúli jafnframt.