Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur sem aðstoðarmann sinn en hún hefur störf í vikunni.

Sonja er með meistara- og BA-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur við útskrift úr BA-námi. Áður hafði Sonja lokið námi í grafískri miðlun frá Iðnskólanum í Reykjavík.

Síðustu fjögur ár hefur Sonja starfað sem starfsmaður og verkefnastjóri þingflokks Framsóknar á Alþingi og hefur þar komið að gerð fjölda þingmannamála tengdum heilbrigðis- og lýðheilsumálum ásamt því að aðstoða þingmenn við vinnslu mála fyrir nefndum Alþingis.

Áður starfaði Sonja sem verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.

Sonja var sambandsstjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar 2021-2023 og ritari stjórnar Félags starfsmanna Alþingis frá árinu 2022. Þá hefur Sonja setið í ýmsum nefndum og ráðum fyrir Borgarbyggð síðustu ár, meðal annars Velferðarnefnd og Barnaverndarnefnd. Auk þess sem hún hefur verið varamaður í stjórn Póstsins frá árinu 2020.

Sonja tekur við starfi Millu Óskar Magnúsdóttur sem þegar hefur látið af störfum. Sigurjón Jónsson er einnig aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.