Knox Hotels, ný hótelkeðja í eigu framtakssjóðsins Alfa Framtak, hefur ráðið til sín tvo nýja starfsmenn. Sonja Sófusdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Knox Hotels og hefur Kolfinna Kristínardóttir verið ráðin sölu- og markaðsstjóri hótelkeðjunnar.

Sonja kemur frá Deloitte þar sem hún sinnti tímabundnum stöðum innan fjármálasviða ólíkra fyrirtækja.

Hún hefur mikla reynslu af fjármálasviðum en hún starfaði um árabil í Deloitte í Danmörku þar sem hún vann við ráðgjöf og verkefnastýringu á sviði fjármála og reikningsskila með áherslu á umbótaverkefni innan fjármáladeilda.

Sonja er viðskiptafræðingur með BSc gráðu frá Háskólanum í Reykjavík ásamt því að vera með meistaragráðu í reikningsskilastjórnun frá Lund University í Svíþjóð.

Kolfinna Kristínardóttir hefur fjölbreytta reynslu úr ferðaþjónustu og nýsköpunarumhverfinu.

Áður en hún réði sig til Knox Hotels starfaði Kolfinna meðal annars hjá Wow Air, Rey Apartments og Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem atvinnuráðgjafi á sviði nýsköpunar.

Síðast starfaði hún sem verkefnastjóri hjá KLAK - Icelandic Startups og leiddi til að mynda ferðaþjónustuhraðalinn Startup Tourism en verkefnið veitir frumkvöðlum ráðgjöf og stuðning við þróun fyrirtækja sinna.

Kolfinna er með BS gráðu í ferðamálafræði og meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands.

„Ég er mjög lánsöm að hafa fengið þær til liðs við okkur. Þær búa yfir dýrmætri reynslu en ekki síst þeim drifkrafti og ástríðu sem verkefnið krefst. Ég hlakka mikið til að taka þátt með þeim í þeirri uppbyggingu hjá félaginu sem framundan er,” segir Hrefna Sverrisdóttir framkvæmdastjóri KNOX Hotels.