Íslandsbanki hefur tilkynnt um ráðningu nýs stafræns hönnunarstjóra og sérfræðings í gagnavísindum í stafrænni upplifun.
Ráðningarnar eru hluti af skipulagsbreytingum í tengslum við uppskiptingu markaðs- og samskiptasviðs í stafræna upplifun og vörumerki. Breytingarnar eru einnig liður í stefnuverkefni bankans er snýr að stafrænni þjónustu.
Pablo Santos hefur verið ráðinn stafrænn hönnunarstjóri Íslandsbanka. Pablo starfaði áður hjá Meniga og Landsbankanum að hönnun og yfirumsjón stafrænna lausna. Hann er með BA gráðu í grafískri hönnun frá LHÍ og hefur stundað nám í markaðsfræði og samskiptum við Unitec í Hondúras.
Kristín Björk Lilliendahl hefur verið ráðin sem sérfræðingur í gagnavísindum inn í stafræna upplifun á Markaðs- og samskiptasviði en hún hefur starfað í viðskiptagreiningu Íslandsbanka síðan 2017. Kristín Björk er með meistaragráðu í verkfræði frá DTU.
Ragnar Trausti Ragnarsson er deildarstjóri vörumerkis og Ólafur Thors tekur við sem deildarstjóri stafrænnar upplifunar. Eygló Benediktsdóttir hefur tekið við sem vörueigandi ytri vefs.