Þær Hörn Valdimarsdóttir, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir og Vala Smáradóttir hafa gengið til liðs við Defend Iceland og mynda, ásamt stofnandanum Theódór Ragnari Gíslasyni, stofnteymi Defend Iceland.

Verkefnið Verjum Ísland, eða Defend Iceland, er svokölluð villuveiðigátt þar sem öryggissérfræðingar úr mörgum áttum og með ólíkan bakgrunn leiða saman krafta sína í því skyni að koma í veg fyrir alvarleg innbrot í net-, tölvu- og hugbúnaðarkerfi fyrirtækja og stofnana.

Villuveiðigáttir (e. bug bounty platforms) eru þekkt leið til að virkja öryggissérfræðinga sem herma aðferðir hakkara við leit að öryggisveikleikum. Markmið Defend Iceland er að finna öryggisveikleika á undan tölvuglæpamönnum og sjá til þess að þeir verði lagfærðir áður en hægt er að valda alvarlegum skaða.

„Til að koma á laggirnar fyrstu villuveiðigátt Íslands er nauðsynlegt að hafa öflugt fólk í brúnni allt frá upphafi og ég er afar ánægður með að hafa fengið þær Hörn, Jóhönnu Vigdísi og Völu til liðs við fyrirtækið. Þær deila áhuga mínum á netöryggismálum, en koma líka inn í fyrirtækið með mikla reynslu úr öðrum hlutum samfélagsins og geirum samfélagsins. Ég hlakka til að takast á við verkefni framtíðarinnar með þeim og ég veit að saman getum við áorkað miklu,“ segir Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi Defend Iceland.

Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi Defend Iceland.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hörn Valdimarsdóttir er rekstrarstjóri og hluti af stofnteymi Defend Iceland. Hún hefur starfað við mannauðsmál frá árinu 2019 og vann hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Tempo Software áður en hún hóf störf sem mannauðsstjóri Syndis árið 2022. Hörn er með BSc gráðu í sálfræði og MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri nýsköpunar, sölu og markaðsmála og hluti af stofnteymi Defend Iceland. Hún kemur til Defend Iceland frá Almannarómi – miðstöð máltækni, þar sem hún var framkvæmdastjóri. Áður starfaði hún meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík og forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Straumi fjárfestingarbanka. Jóhanna Vigdís er með MBA gráðu frá HR og AMP gráðu frá IESE Business School.

Vala Smáradóttir er framkvæmdastjóri vöru- og verkefnastýringar og hluti af stofnteymi Defend Iceland. Hún hefur síðustu ár unnið að verkefnum í stafrænum umbreytingum og nýsköpun á sviði sjálfbærni og vöru- og hugbúnaðarþróunar. Hún er með bakgrunn í verkefnastjórnun, hagnýtum markaðsfræðum og miðlun. Vala er með BA gráðu í ensku og MA gráðu í hagnýtri menningarmiðlun auk viðbótardiplóma í kennslufræðum.