Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt um breytingar á framkvæmdastjórn bankans, að því er kemur fram í tilkynningu á vef hans.
Sturla Pálsson tekur við sem forstöðumaður skilavalds bankans, Haukur C. Benediktsson er settur framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og Flóki Halldórsson er settur framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika.
Sturla Pálsson, nýr forstöðumaður skilavalds Seðlabanka Íslands, hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóri markaðsviðskipta síðastliðin 20 ár, eða frá árinu 2005.
Sturla hefur starfað samfleytt í Seðlabankanum frá árinu 2001. Áður starfaði hann í Íslandsbanka, hjá Hagstofunni og þar áður í Seðlabankanum. Sturla var um tíma í stjórn Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf.
Hann er með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og masterspróf í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.
Haukur C. Benediktsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs síðastliðin ár, er settur framkvæmdastjóri markaðsviðskipta.
Haukur hóf störf í Seðlabankanum árið 2001 og var til ársins 2006 en var ráðinn aftur til bankans í janúar 2009. Hann sinnti starfi framkvæmdastjóra Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. frá janúar 2013 allt þar til félagið var lagt niður í febrúar 2019.
Haukur er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics.
Flóki Halldórsson, sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns skilavalds, er settur framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika.
Flóki hefur starfað í aldarfjórðung á fjármálamörkuðum og í Seðlabankanum. Síðustu fimm ár hefur hann veitt forstöðu skrifstofu skilavalds hjá Seðlabankanum. Áður en hann gekk til liðs við Seðlabankann var hann framkvæmdastjóri sjóðafyrirtækisins Stefnis um tíu ára skeið.
Flóki er með Executive MBA gráðu frá Copenhagen Business School og lauk grunnnámi í hagfræði við Háskóla Íslands.