Daði Guðjónsson hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu. Á sama tíma hverfur Sveinn Birkir Björnsson, sem stýrt hefur sviðinu undanfarin ár, til annarra starfa hjá Íslandsstofu en hann er að flytja búferlum erlendis. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Daði kemur frá Krónunni þar sem hann hefur stýrt markaðs- og sjálfbærnimálum undanfarin tvö ár. Hann er þó öllum hnútum kunnugur hjá Íslandsstofu enda starfaði hann þar í átta ár, síðast sem fagstjóri neytendamarkaðssetningar til ársins 2022 en í því starfi leiddi hann markaðsherferðir á borð við Icelandverse, Let it Out og OutHorse. Áður starfaði Daði m.a. fyrir Úrval Útsýn, RÚV og auglýsingastofuna Kapital.

Daði er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í hagfræði, með fjölmiðlafræði sem aukagrein, frá Háskóla Íslands.

Daði Guðjónsson:

„Ég er mjög spenntur að ganga aftur til liðs við Íslandsstofu í nýju hlutverki og leiða áfram það frábæra markaðsstarf sem þar fer fram á alþjóðavísu. Tækfæri íslenskra útflutningsgreina eru á ýmsum sviðum og Íslandsstofa frábær vettvangur til að leiða saman hagsmunaaðila í markaðssókn fyrir Íslands hönd.”

Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu:

„Það er okkur mikil ánægja að fá Daða aftur heim til Íslandsstofu og ég býð hann innilega velkominn og hlakka til samstarfsins. Daði hefur dýrmæta reynslu og þekkingu sem munu nýtast frábærlega í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru. Um leið vil ég þakka Sveini Birki fyrir hans störf á markaðssamskiptasviði Íslandsstofu undanfarin ár en hann mun áfram starfa að ýmsum verkefnum fyrir Íslandsstofu, meðal annars við undirbúning þátttöku Íslands á heimssýningunni í Osaka árið 2025.”