Svandís Jónsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri Fastus lausna, söludeild innan Fastus sem þjónustar fyrirtæki, hótel og stóreldhús. Hún býr yfir 18 ára reynslu úr alþjóðlegu umhverfi í lyfja- og matvælavinnsluiðnaði.

Undanfarin ár hefur Svandís verið í leiðandi hlutverki í stofnun og rekstri alþjóðlegs söluteymis innan Marel og tekið þátt í innleiðingu nýrra fyrirtækja.

Þar áður starfaði hún í lyfjaiðnaði við sölu og viðskiptaþróun hjá Medis ehf. og við lyfjaskráningar hjá STADA Arzneimittel AG í Þýskalandi og Actavis. Áður en Svandís kom til Fastus starfaði hún sem verkefnastjóri innleiðingar stefnu hjá Veitum ohf. Svandís er jafnframt matvælafræðingur að mennt.

Skipulagsbreytingar hafa einnig átt sér stað hjá Fastus sem mun nú reka þrjár sérhæfðar deildir sem eru Fastus heilsa, Fastus lausnir og Fastus expert.

„Við bjóðum Svandísi velkomna til starfa hjá Fastus en hún kemur með mikla reynslu og þekkingu sem eykur enn frekar á styrk félagsins. Fastus hefur ákveðið að snúa aftur að því skipulagi sem hefur reynst félaginu og viðskiptavinum þess best. Framvegis starfar Fastus sem ein heild með þremur sérhæfðum deildum, þar sem hver og ein leggur áherslu á sitt svið,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fastus.