Sveinn Rafn Eiðsson hefur verið ráðinn í starf fjármálastjóra Sláturfélags Suðurlands og tekur við starfinu 1. júlí næstkomandi af Hjalta H. Hjaltasyni sem gegnt hefur starfinu í 38 ár.

Hann er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.acc.-gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Sveinn Rafn er einnig löggiltur endurskoðandi auk þess að hafa próf í verðbréfaviðskiptum.

Sveinn Rafn kemur til SS frá Lagardére travel retail ehf. þar sem hann hefur gengt stöðu forstjóra. Áður hafði hann gengt stöðu fjármálastjóra hjá Icelease ehf. og Lagardére travel retail ehf. Þar á undan starfaði hann hjá Ernst & Young ehf.

Í tilkynningu segir að Hjalti H. Hjaltason verði eftirmanni sínum til aðstoðar eins og þarf þegar Sveinn Rafn kemur til starfa. Hjalti mun einnig taka að sér sérverkefni tengd fjármögnun og verkefni í búrekstrardeild félagsins.