Sverrir Jónsson, sviðsstjóri stafrænna umbóta hjá Skattinum, hefur verið ráðinn skrifstofustjóri Alþingis. Tilkynnt var um þetta á Alþingi í hádeginu en ákvörðunin var tekin á fundi forsætisnefndar í dag.

Sverrir tekur við starfinu af Rögnu Árnadóttur sem tekur við starfi forstjóra Landsnets þann 1. ágúst næstkomandi.

Sverrir hefur starfað hjá Skattinum frá því í ágúst síðastliðnum en þar áður vann sem rekstrarstjóri hjá EFTA í þrjú ár. Hann starfaði þar áður í 15 ár hjá fjármálaráðuneytinu, síðast sem skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu ríkisins og gegndi á þeim tíma formennsku í samninganefnd ríkisins.

Alls bárust 22 umsóknir um embætti skrifstofustjóra Alþingis sem auglýst var 15. mars sl. en umsóknarfrestur rann út 31. mars. Listann má finna hér.

Skipuð var ráðgefandi hæfnisnefnd til að fara yfir og leggja mat á hæfni umsækjenda um embætti skrifstofustjóra Alþingis og skila um það greinargerð til undirnefndar forsætisnefndar Alþingis. Hæfnisnefndina skipuðu þau Skúli Eggert Þórðarson, formaður, Elín Blöndal og Þórdís Ingadóttir.