Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur nýjan forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR).
Skipun Þorgerðar kemur í kjölfar þess að staða forstjóra ÁTVR var auglýst laus til umsóknar í apríl síðastliðnum og bárust 19 umsóknir.
Þorgerður var valin úr þeim hópi með hliðsjón af fjölbreyttri og öflugri reynslu hennar á sviði stjórnunar í smásölugeiranum.
Þorgerður er með B.A.- og Cand.Psych.-gráðu í sálfræði með áherslu á vinnu- og skipulagssálfræði. Að auki hefur hún lokið PMD-stjórnendanámi og sótt fjölda sérnámskeiða í tengslum við stefnumótun og leiðtogahæfni.
Hún býr yfir víðtækri reynslu af stjórnunarstörfum á smásölumarkaði og hefur frá árinu 2014 gegnt starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar.
Áður starfaði hún í yfir áratug hjá Lyfju hf., sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs og mannauðsstjóri.