SIV eignastýring hf. bíður nú starfsleyfis sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða með viðbótarheimild til eignastýringar og er áætlað að starfsemi félagsins hefjist um leið og starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands liggur fyrir.

Þorkell Magnússon hefur verið ráðinn sem forstöðumaður sjóðastýringar hjá SIV eignastýringu. Hann hefur umtalsverða reynslu úr fjármálageiranum þar sem hann hefur starfað undanfarin 25 ár.

Þorkell var áður forstöðumaður sjóðastýringar hjá Kviku eignastýringu hf. og var þar á undan forstöðumaður skuldabréfa hjá Öldu sjóðum. Hann var jafnframt forstöðumaður skuldabréfasviðs hjá Stefni hf. auk þess að vera staðgengill framkvæmdastjóra félagsins.

Þorkell gegndi þar áður stöðu sjóðstjóra innlendra og erlendra skuldabréfasjóða hjá Rekstrarfélagi Kaupþings ásamt því að taka þátt í þróun á sérhæfðum fjárfestingum hjá félaginu. Hann er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota. Þorkell hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og hefur nú þegar hafið störf.

Sævar Haraldsson hefur verið ráðinn sem sjóðstjóri skuldabréfasjóða hjá SIV eignastýringu auk þess að vera hluti af „kredit“ teymi félagsins. Undanfarin sex ár hefur hann starfað hjá Stefni hf. sem sjóðstjóri skuldabréfasjóða. Áður starfaði hann sem skuldabréfamiðlari hjá Fossum mörkuðum. Sævar hefur einnig starfað hjá Arion banka í skuldabréfa- og gjaldeyrismiðlun. Sævar er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálastærðfræði frá Boston University. Hann hefur jafnframt lokið námi í verðbréfaviðskiptum.

„Það er afar ánægjulegt að fá jafn öfluga starfsmenn til starfa fyrir félagið. Ég tel að víðtæk reynsla þeirra og menntun muni styrkja félagið enn frekar. Við hlökkum til að bjóða upp á fjölbreytt framboð sjóða, auk eignastýringar, um leið og félagið fær starfsleyfi,“ segir Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIV eignastýringar.