Upplýsingatæknifyrirtækið OK hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn á svið skýja- og rekstrarþjónustu. Það eru þeir Karl Óskar Kristbjarnarson, Kristján Aðalsteinsson og Þorvaldur Finnbogason.

OK sérhæfir sig í sölu og ráðgjöf á tæknilausnum og tengdri þjónustu við mörg stærstu fyrirtæki landsins, stofnanir og alþjóðleg fyrirtæki.

Karl Óskar Kristbjarnarson, hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptastýringar í skýja- og rekstrarþjónustu. Hann er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Karl kemur til OK eftir samruna upplýsingasviðs TRS við OK og hefur auk þess mikla reynslu af því að vera deildarstjóri upplýsingatæknisviðs í fyrra starfi.

Kristján Aðalsteinsson tekur við sem forstöðumaður vef- og hugbúnaðarlausna. Hann er með MBA frá Háskóla Íslands. Kristján er einnig menntaður stjórnenda-markþjálfi frá Háskóla Íslands og kemur með reynslu af sölu og verkstýringu frá Gangverk.

Þorvaldur Finnbogason hefur verið ráðinn forstöðumaður kerfislausna. Hann er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og hefur unnið lengi hjá OK í viðskiptastýringu og vöruþróun. Hann var meðal annars í viðskiptastýringu hjá Þekkingu og yfirmaður þjónustusviðs hjá Símafélaginu.

„Við erum afar ánægð með þessa nýju stjórnendur en reynsla þeirra og þekking mun styrkja OK enn frekar á þeirri vegferð sem fyrirtækið er. OK er í miklum vexti og það er okkur afar mikilvægt að fá rétt fólk í ferðalagið með okkur,“ segir Halldór Áskell Stefánsson, framkvæmdastjóri skýja- og rekstrarþjónustu OK.