Ingveldur Gísladóttir, Björgvin Arnar Björgvinsson og Gísli Þorsteinsson hafa tekið við starfi forstöðumanna hjá OK. Ingveldur er forstöðumaður Búnaðarþjónustu, Björgvin Arnar forstöðumaður Innviðalausna og Gísli forstöðumaður Notendabúnaðar.

Um er að ræða ný svið hjá OK en markmiðið með þessum breytingum er að skerpa á skipulagi fyrirtækisins og efla þjónustu til viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði.

Björgvin Arnar er með diplóma í kerfisfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann kemur aftur til OK eftir 10 ára fjarveru en hann starfaði hjá Opnum kerfum sem tæknimaður og ráðgjafi á árunum 1999-2013. Þá stofnaði hann eigið ráðgjafafyrirtæki og vann síðan sem kerfisstjóri hjá RARIK.

Ingveldur hefur mikla reynslu á sviði upplýsingatækni en hún var þjónustustjóri hjá Hátækni frá 2001 til 2013. Hún hóf störf hjá OK árið 2014 og var áður forstöðumaður verkstæðis- og ábyrgðarþjónustu.

Gísli er með MBA frá Háskólanum í Reykjavík, BA í sagnfræði og próf í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands. Hann starfaði lengi vel sem blaðamaður á Morgunblaðinu og varð síðar upplýsingafulltrúi hjá Vodafone. Hann hefur einnig starfað sem markaðsstjóri hjá Matís og Origo.

„Við erum í mikilli sókn og það er spennandi að fá Ingveldi, Björgvin Arnar og Gísla til liðs við okkur á þessum mikilvæga tímapunkti. Þau búa yfir mikilli sérþekkingu og reynslu sem mun styrkja OK í þeirri vegferð að bæta þjónustu okkar og auka skilvirkni þannig að við getum veitt viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu og stuðlað að áframhaldandi vexti OK,“ segir Gunnar Zoéga, forstjóri OK.