Þrír nýir starfsmenn hafa bæst við starfsmannahóp auglýsingastofunnar Hvíta hússins. Erla María Árnadóttir, Karl Ólafur Hallbjörnsson og Leifur Wilberg Orrason hófu störf hjá Hvíta húsinu nýverið. Í tilkynningu frá Hvíta húsinu kemur fram að með nýjum ráðningum sé verið að styðja við vöxt félagsins og mæta auknum umsvifum í starfseminni.

„Það er ánægjulegt að fá til okkar nýja starfskrafta sem öll búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði hugmyndasmíðar og hönnunar. Mikilvægt að fá aukinn stuðning því þrátt fyrir heimsfaraldur þá hafa umsvifin aukist á síðastliðnu ári og við sjáum fram á áframhaldandi vöxt," segir Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins, í tilkynningunni.

Margverðlaunaður hönnuður

Erla María Árnadóttir var ráðin í starf Art Director og mun jafnframt sinna alhliða ráðgjöf á sviði vörumerkjaþróunar og markaðsmála. Erla María er margverðlaunaður hönnuður og Art Director með víðtæka reynslu í hönnunargeiranum bæði á Íslandi og í Brighton. Erla rak áður hönnunarfyrirtækið Studio Erla & Jonas, frá árinu 2012. Erla er með meistarapróf í menningarstjórnun frá Bifröst, hún er með BA gráðu í margmiðlunarhönnun og hreyfigrafík frá IED- European Instite of Design, Milano.

Víðtæk reynsla af fjölmiðlastörfum

Karl Ólafur Hallbjörnsson starfar sem texta- og hugmyndasmiður. Karl er með Mastersgráðu í heimspeki frá Warwickháskóla í Bretlandi. Hann er með BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands. Karl varði jafnframt hálfu ári í skiptinámi við Kyoto-háskóla í Japan. Karl starfaði sem pistlahöfundur fyrir útvarpsþáttinn ,,Lestin" á Rás 1, þar sem hann skrifaði vikulega pistla þar frá því um ársbyrjun 2017 og allt til ársins 2020. Karl starfaði ennfremur sem blaðamaður um skeið meðal annars hjá Viðskiptablaðinu og 365 Miðlum. Karl hefur einnig unnið sem verktaki hjá Kara Connect, Siðmennt og Landsvirkjun.

Margra ára reynsla af hönnun og ljósmyndun

Leifur Wilberg Orrason hefur verið ráðinn til starfa sem grafískur hönnuður. Leifur er með BA gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. Hann er með BA gráðu í ljósmyndun frá Lette Verein-Berufsfachschule für Design í  Berlín ennfremur er hann með diploma frá Ljósmyndaskólanum. Leifur er einnig með jógakennararéttindi frá Indian Yoga & Meditation Association, Rishikesh Indlandi. Áður en Leifur hóf störf hjá Hvíta húsinu starfaði hann sem grafískur hönnuður hjá Storytel á Íslandi. Leifur starfaði sjálfstætt til fjölda ára sem hönnuður og ljósmyndari fyrir fjölda fyrirtækja, meðal annars fyrir Hreyfingu heilsurækt, Brandr, Wilbergs Group, Listaháskóla Íslands, Sahara, Listahátíð Reykjavíkur, Icelandic Startups, Tjarnarbíó, Þjóðleikhúsið, Samtökin78, Gerðasafn og FÍT.