Þeir Árni Freyr Sigurðsson, Fjölnir Ólafsson og Hjalti Geir Erlendsson hafa tekið við stöðu verkefnastjóra hjá LEX, einni stærstu lögmannsstofu landsins.

Árni Freyr hóf störf á LEX sem laganemi árið 2018 og réðst til félagsins sem fulltrúi að loknu laganámi frá Háskóla Íslands árið 2020. Í störfum sínum hjá LEX hefur hann einkum starfað á sviði fjármunaréttar, þar á meðal við ráðgjöf við kaup, sölu og samruna fyrirtækja, fjármögnun fyrirtækja, verðbréfamarkaðsrétt og almenna félagaréttarráðgjöf. Árni er með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum.

Hjalti Geir hóf störf sem fulltrúi hjá LEX að loknu laganámi frá Háskóla Íslands árið 2013. Hann lauk meistaragráðu í lögum (LL.M.) frá Columbia-háskóla í New York árið 2016, en hefur auk þess starfað hjá EFTA skrifstofunni í Brussel og hjá Umboðsmanni Alþingis. Í störfum sínum hjá LEX hefur Hjalti einkum starfað á sviði eigna-, auðlinda- og stjórnsýsluréttar, sem og félaga- og Evrópuréttar. Hjalti er með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum.

Fjölnir hóf störf sem laganemi á LEX árið 2017 en hóf störf sem fulltrúi að loknu laganámi frá Háskóla Íslands árið 2019. Í störfum sínum hjá LEX hefur Fjölnir lagt megináherslu á samkeppnisrétt, stjórnsýslurétt, samninga- og kröfurétt og málflutning. Þá hefur hann sinnt fjölbreyttum verkefnum á sviði félagaréttar, verktaka- og útboðsréttar, hugverkaréttar, Evrópuréttar og tollaréttar. Fjölnir er með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum.